Guðrún Jóna |
|
|
|
20.7.03
Það er búið að vera frábært að vera í sumarfrí síðustu daga. Loksins kom sólin og hiti um leið, það þýddi að sjálfsögðu að námið var lagt til hliðar á meðan sólarinnar var notið í garðinum. Nú á veðrið að fara að breytast í rigningu og er því gott að fara að snúa sér að lærdómi. Einkunnin var haustnámskeiðinu er komin og er það mikill léttir - er ánægð með hana. Það er búið að taka öll teppin af gólfinu hjá mér því nú á að parketleggja og setja flísar. Það er eins og að búa í fokheldu húsi. Þetta á eftir að standa yfir næstu fjórar vikur að minnsta kosti með tilheyrandi aðstoðarmönnum. 15.7.03
Nú er kominn tími til að skrifa í dagbókina. Ég er búin að vera að ferðast um landið og er nú farin að vinna aftur. Fór fyrst í Veiðivötn þar sem veiddist vel en var fullt af flugu og síðan til Vestfjarða. Gekk frá Aðalvík við Sæból yfir á Hesteyri og aftur til Aðalvíkur að Látrum. Gekk líka upp á Straumnesfjall í miklu roki. Annars var þetta mjög skemmtileg ferð. Núna er ég að byrja að vinna við lokaverkefnið hjá Láru. Ætla að skrifa um möguleika á fjarkennslu í vali hjá 9. og 10.bekk. 25.6.03
Jæja það tókst að laga bloggið. Það var auðvelt ég þurfti bara að biðja um íslenska stafi í settings. Annars er all gott að frétta. Það hefur verið mikið að gera í náminu síðan ég kom heim frá Boston. Á mánudaginn fer ég aftur í frí og byrja á því að fara að veiða í Veiðivötnum og fer síðan að ganga á hornströndum. Síðan held ég að ég verði að drífa mig heim og halda áfram að lesa greinar og skrifa. Það er töluvert álag í náminu í sumar finnst mér. Ég frétti að margir frá fyrra námskeiði ætluðu að halda áfram að blogga og er ég að hugsa um að vera með í þeim hópi. 17.6.03
25.5.03
Var að senda inn kynningu á WebCT á námskeiðið hennar Láru. Ég verð að viðurkenna að það er svolítið spennandi að vera í samstarfi við háskóla úti í hinum stóra heimi. Ég hef áhyggjur af því hvort við þurfum þá að skrifa allt á ensku. Við fáum að vita meira um það í dag. Ég ætla að hitta nkn vinnuhópinn minn í kvöld á Tabas barnum og ætlum við að spjalla um annað en kennsluvefínn í kvöld. Við höfum heilmiklar hugmyndir um ýmislegt sem gaman væri að gera og erum að skipuleggja vettvangsnámið næsta vetur. Við þurfum að fá leiðsögukennara/leiðbeinanda sem er með reynslu af söguaðferð og margmiðlun, þannig að allar ábendingar um slíkan eru vel þegnar. 19.5.03
Jæja nú er ég búin að skila verkefnum þessarar annar af mér. Ég er orðin nokkuð ánægð með kennsluvefinn og held að hann eigi eftir að nýtast vel í Hamraskóla. Ég hef aðeins verið að sýna hann og hefur hann vakið lukku. Ég vona að fleiri séu sammála. Kennsluverkefnið er byrjendakennsla í PowerPoint og ég lagaði kennsluverkefnið byrjendakennsla í Excel. Skipulag námslotu varð skipulag valáfanga fyrir 9. og 10.bekk í Hamraskóla en þeim verður kennt saman næsta vetur. Vonandi gengur þetta vel. Ég ætla að einbeita mér að einkunnagjöf næstu daga á meðan námskeiðið hennar Láru er ekki byrjað. 17.5.03
Ég gleymdi að minnast á að ég var í frábæru fimmtugs afmæli í gær hjá aðstoðarskólastjóranum okkar. Í kvöld verður önnur veisla og næstu helgi fer ég í sumarbústað með saumaklúbbnum mínum, sem eru vinkonur mínar frá námsárum okkar hjóna í Lundi í Svíþjóð. Ég er fegin að það er enn til líf fyrir utan tölvuna. Það sem ég hef vanrækt mest í vetur er að hreyfa mig þó ég sé með árskort í Árbæjarþreki og er ég í startholunum að fara að vinna í því. Hef ekkert unnið við vefinn síðan hann komst í lag en hef sinnt vinnunni vel í staðinn. Nú get ég verið með tölvuna í eldhúsinu og alls staðar þannig að ekki hef ég mikla afsökun að nýta ekki tímann vel. Ég gleymdi að segja aðeins frá ferðinni til Grindavíkur þar sem við unnum í Grindavíkurskóla og þáðum frábæra fisksúpu hjá Frú Mogensen. Að vísu var þetta ekki nógu skemmtileg vinna fyrir mig þar sem tölvan var í lamasessi heima en ég notaði tímann til að lesa yfir innihaldið á því sem komið var. Ég var með ferðaminnið og þegar ég setti leiðréttingarnar inn á tölvuna síðar þá klúðraðist öll síðan og veit ég ekki hvernig ég fór að því. En það er semsagt búið að lagfæra það með mikilli handavinnu. Það þurfti að yfirfara allar síðurnar. Er ég því orðin þreytt og hvekkt og er að hvíla mig á þessari síðu. Á morgun fer ég í lokafrágang og eftir það verður ekki unnið meira tengt náminu. Bréf kom í gær um að námskeiðið hjá læru myndi byrja í dag og verð ég líklega að einbeita mér að því. Ég er sjálf nokkuð ánægð með Hamraskólavefinn minn og veit að hann verður í sífelldri þróun, það er tilgangurinn með honum. Það sem mér finnst mikilvægast að hafa gert á þessu námskeiði er að hafa skipulagt hann og komið honum af stað. 15.5.03
Það er ýmislegt búið að ganga á í tæknimálum hjá mér síðustu daga. Ég fékk vírus í tölvuna sem ég vinn vefina í og netið fór alveg úr sambandi og kom svo bara að nokkru leyti aftur, eftir að þráðlaust net var sett heim. Nú er búið að laga þetta allt saman og ég get flakkað um með tölvuna um húsið sem er mikill lúxus. Vegna alls þessa þá eru verkefnin mí ekki alveg tilbúin og verða í smá yfirliti næstu daga. Annars er að koma mikil vinnutörn í skólanum næstu dagana og verður það látið ganga fyrir. Ofan á þetta allt saman fór lokavefurinn minn út og suður og var ég að hugsa um að gefast bara upp og hætta við þetta allt saman. Nú er allt komið í lag og ætla ég að fikta mjög lítið til viðbótar. 13.5.03
Í dag á að vinna mikið. Ég er búin að setja krækjur að öllum verkefnunum mínum á skilasíuna og verð í því að laga og bæta næstu daga. Kennaravefurinn er nokkuð sem verður að vinna í stöðugt og klárast aldrei, þannig að það kemur bara í ljós hvað verður tilbúið 15.maí. Vinnutímamagnið sem hefur farið í að vinna lokaverkefnin er vel yfir 40 stundum, en það er alltaf gaman að sjá þegar þetta er að skríða saman. 12.5.03
Það hefur verið erfitt að blogga síðustu daga þar sem netið hefur legið niðri og ýmis störf hindrað mig frá tölvunni. Vinnuhópurinn vann vel á laugardaginn í Kennó og ætlum við að hittast í Grindavík á morgun. Við ætlum enn að skila 15. maí og held ég að það geti alveg tekist hjá okkur. Kennsluverkefnið og skipulag námskeiðs eru komin út á netið. Er einhver sem getur sagt mér hvernig hægt er að stjórna breiddinni á Wordskjalinu. 9.5.03
Nú er ég næstum búin með skipulagið og kennsluvefinn. Ég er búin að hanna vefsíðu fyrir lokaverkefnið og þarf nú að vera dugleg að fylla inn á hana. Það hefur verið unnið stíft undanfarið og finnst mér eins og þetta sé að koma. Ég er búin að lenda í mörgum tæknistíflum við að hanna vefinn, þar sem ég tók upp á því að hanna hann í Fireworks og hafa felliglugga, sem ég kunni náttúrulega alls ekki í upphafi. Ég verð að segja að ég hef lært ótrúlega mikið á þessu og þrjóskan kemur sér stundum vel, en gerir hlutina stundum full erfiða. Ég er ánægð með að vera í vinnuhóp að gera þessi verkefni og mér finnst ég vera rík að eiga tvo vinnuhópa. 5.5.03
Mikið vildi ég að ég hefði fengið meiri verkelega kennslu í Dreamweaver og Fireworks. Það vefst einhvern veginn allt fyrir mér sem mig langar að gera. Á morgun ætla ég að fara í Kennó og láta athguga hvort hægt sé að virkja þráðlausa netið í tölvunni minni þar. Nú langar mig að hafa fellihnappa á vefsíðunni og þá er kominn nýr þröskuldur, svon er þetta alltaf. Nýjar og nýjar hindranir að yfirstíga. Annars finnst mér verkefnið hjá okkur stöllum sem erum að vinna að kennsluvef fyrir kennara bara miða áfram. Þetta skríður áreiðanlega saman fyrir rest. Ég held að nauðsynlegt sé í þessu námi að fara saman í byrjun annar með kennara í að búa til síðu með helstu atriðum þar sem nokkrar síður eru tengdar saman og unnin eru verkefni inn á þær. Einnig þjálfað í að tengja inn á Word skjöl og PowerPoint glærur, því það er ótrúlegt hvað þessir hlutir geta vafist fyrir manni ef maður hefur ekki lært þá. Annars finnst mér gaman að þessari vefsíðugerð og hönnun og fyndist það mikill missir ef það ætti bara að nota einhverjar tilbúnar síður af netinu. Þetta þurfum við að kunna ef við ætlum að nýta okkur vefinn til að miðla upplýsingum á okkar hátt. 3.5.03
Er búin að gera fyrirmynd af kennsluvef sem á að verða lokaverkefnið mitt. Ég vann síðuna í Fireworks og færði hana yfir. Þetta gekk ekki þrautalaust en ég er ánægð með niðurstöðuna. Nú er ég ósátt við gamla vefinn en það verður að bíða. Er búin að vinna í skipulagi valáfanga fyrir 9. og 10.bekk. Veit ekki hvernig ég birti það og PowerPoint kynningu sem ætluð er fyrir kennara og unglinga, sem ég legg inn sem kennsluverkefni. Ég á eftir að færa bæði verkefnin á vefin og veit að það mun ekki ganga þrautalaust. Þrautagangan heldur áfram á morgun. Ég held ég haldi mig við að vinna þessi verkefni þar til þau verða tilbúin. Síðan tekur við mikil törn í skólanum. 2.5.03
Vann að gerð kennsluverkefnis í gær. Í dag ætla ég að gera kennsluáætlun og reyna að koma þessu á skilasíðuna mína. Nú er ég að velta fyrir mér þegar ég geri vefsíðuna hvort ég eigi að í staðinn fyrir sites að skrifa hamravefur og halda áfram eða fara í sites og skrifa í staðinn fyrir portfolia hamravefur. Ef einhver les þetta væri ég ánægöð að fá svar. Það er 1 eða 2 möguleiki eða hvorugt. 29.4.03
Vinnuhópurinn hittist í dag og ég held við séum að ná lendingu í því hvernig verkefnið okkar á að vinnast. Margir eru þegar búnir að skila inn verkefnum sem okkur leist mjög vel á. Við verðum á annarri línu þar sem við erum að útbúa vef fyrir tölvukenslu í skólunum okkar og mun því verða mikið um heimildaöflun og að krækja í síður frá öðrum. Við viljum sfna nýtilegu efni á einn stað. Munum við vinna saman að þessu verkefni og einnig sérsníða að viðkomandi skólum. Þetta virtist mikið og óyfirstíganlegt en ég held við höfum allar farið að sjá ljósið í dag. |